Golf 18

ABC mótaröðin - ABC bikarinn

1. umferð

Úrslit í fyrstu umferð á ABC mótaröðinni

 

Fyrsta umferð fór fram á ABC mótaröðinni í maí á Gufudalsvelli í Hveragerði. Lagt var upp með að stækka mótaröðina í ár með því að bæta við tveimur kvennaflokkum og tveimur unglingaflokkum. Þar sem augljóslega er mikil fækkun á þátttakendum á öllum mótum og dræmra undirtekta því verður þessum áformum frestað þangað til að betur árar.

 

Ingvar Ágústsson lék best allra í Hveragerði á 81 höggi, en hann er í 1. flokki og leiðir hann. Pétur V. Kristjánsson GOS er í 1. sæti í öðrum flokki á 85 höggum og í 3. flokki er Eiríkur Þór Eiríksson efstur, en hann vann 4. flokkinn í fyrra. Í fjórða flokki er leikið með forgjöf og þar er Ragnheiður Jónsdóttir efst eftir umferðina á 83 höggum nettó.

 

 

1. flokkur

1500 Ingvar Ágústsson GKJ 8,8 högg 81

960   Erlingur Arthúrsson GHG 5,8 högg 84

960   Axel Rúdolfsson GR 8,1 högg 84

960   Halldór Ólafsson GR 7,1 högg 84

862,5 Þórleifur Gestsson GKG högg 85

787,5 Karl Grétarsson GK 9,7 högg 86

712,5 Hlöðver Guðnason GKG 8 högg 90

 

2. flokkur:

1500    Pétur V. Kristjánsson GOS 10,1 högg 85

1132,5 Hafþór Kristjánsson GK 11  högg 91

1132,5 Hans Guðmundsson GO 10,9 högg 91

952,5   Jóhann V. Tómasson NK 13,6 högg 93

862,5   Valur Jónatansson GR 13,3 högg 97

787,5   Erlingur Snær Loftsson GKV högg 98

 

3. flokkur

1500 Eiríkur Þór Eiríksson GOS 15,5 högg 89

1200 Friðrik Friðriksson GK 15,6 högg 90

1065 Björn Árnason GK 18,8 högg 95

952,5 Ragnar Geir Hilmarsson GKG 18 högg 96

862,5 Sigurður Þorvaldsson GR 18,4 högg 102

787,5 Róbert Ólafsson GOS 16,9 högg 105

 

4. flokkur

1500 Ragnheiður Jónsdóttir GK 22,7 högg 103 vallarforgjöf 20 nettó 83

1200 Kristján Þór Gunnarsson GKG 21,3 högg 114 vallarforgjöf 19 nettó 95

1065 Rebekka Valgeirsdóttir GK 26,5 högg 120 vallarforgjöf 23 nettó 97

952,5 Kristborg Ingibergsdóttir GK 36,4 högg 135 vallarforgjöf 33 nettó 102

 

Þar sem þrjú mót gilda af fjórum er um að gera fyrir þá sem misstu af fyrstu umferðinni að skella sér í þessa umferð á Flúðum og vera með.

 

 

Vafraðu um