Golf 18

ABC mótaröðin - ABC bikarinn

ABC bikarinn 2010

ABC bikarinn er leikinn í tveimur flokkum. Karla- og kvennaflokki.

Allir karlar sem skrá sig til leiks fara í einn pott sem dregið verður úr.

Allar konur sem skrá sig til leiks fara í einn pott sem dregið verður úr.

Leikfyrirkomulag er útsláttarkeppni. 

Þátttökugjald er óbreytt frá í fyrra kr. 2.500.-
500 krónur af hverju þátttökugjaldi rennur til ABC barnahjálpar. 

Fyrsta umferðin er punktakeppni.
Önnur umferð er höggleikur með forgjöf. 
Allar umferðir eftir það er holukeppni með forgjöf.

Hámarksforgjöf hjá körlum er 24 og 28 hjá konum. 
Leikmaður skal hafa löglega forgjöf.  

Kostir keppnisfyrirkomulagsins eru: 
* Frjálst val um stund og stað.
* Þú spilar alltaf í góðu veðri.
* Keppnin truflar ekki önnur mót sem þú tekur þátt í.
* Keppnin truflar ekki mótahald klúbbana.

Skráið ykkur tímanlega til leiks. Um leið og leikmaður hefur skráð sig til leiks og greitt þáttökugjald er hann kominn í pottinn í viðkomandi flokki (karla- eða kvennaflokki).

Ath. Ekki er hægt að bæta við keppendum eftir að búið er að draga í fyrstu umferðina. 
 
Kynnið ykkur hvernig leika skal hér til hægri undir "Svona leikum við" og "Reglur". 

 

Vafraðu um