ABC mótaröðin 2010
Þú þarft ekki að skrá þig fyrirfram í ABC mótaröðina. Þú mætir, greiðir mótsgjaldið, færð stimplað skorkort sem gildir sem skráning í mótið. Vandið ykkur þegar þið merkið skorkortið ykkar!
Fyrstu umferð í ABC mótaröðinni er lokið. Leikið var í Hveragerði í Maí.
Annarri umferð er lokið og nú skal halda í Sandgerði. Leiktími er út júlí.
Leikið verður á eftirfarandi völlum í sumar:
Maí: Gufudalsvöllur í Hveragerði.
Júní: Selsvöllur á Flúðum Leika skal fyrir lok júní mánaðar!
Júlí: Kirkjubólsvöllur í Sandgerði.
Sjá flokka og fyrirkomulag hér neðar á síðunni.
Ágúst: Reykholtsdalsvöllur í Borgarfirði
Þátttökugjald er óbreytt frá í fyrra kr. 3.000.-
500 krónur af hverju þátttökugjaldi rennur til ABC barnahjálpar.
Niðurskurður verður fyrir lokahringinn sem leikinn verður í september. Topp 20% fær keppnisrétt í loka umferðina. Völlur verður tilkynntur með hæfilegum fyrirvara.
Smávægilegar breytingar eru gerðar í ár á mótaröðinni til að slípa af vankanta frá fyrsta árinu sem var í fyrra:
Ætlunin í upphafi var að hafa ABC mótaröðina alvöru"massíva" golfkeppni án forgjafar og engin sjéns gefin neinsstaðar á að misstíga sig.
Nú er mér ljóst að það þarf að fá einn sjéns á árinu og því hefur verið ákveðiðeftirfarandi breytingar á ABC mótaröðinni:
A: Fyrst verða spilaðar fjórar umferðir og þrjár bestu af þeim telja.Leikinn er höggleikur án forgjafar eins og áður og fá leikmenn stig eftirhvaða sætum þeir ná eins og í fyrra. 4. flokkur er höggleikur með forgjöf.
Niðurskurður verður í fimmtu umferðina og verður miðað við ca. topp 20%. Þeir sem ná ekki gegnum niðurskurðin fá ekki leikrétt í fimmtu umferð. Þannig að nú er það markmiðið að komast í síðustu umferðina.
Flokkar verða fjórir:
1. flokkur grunnforgjöf 5,1 til 10,0
2. flokkur grunnforgjöf 10,1 til 15.4
3. flokkur grunnforgjöf 15.5 til 21,0
4. flokkur grunnforgjöf 21.1 og hærra. Höggleikur með forgjöf.
Nú er greiðslufyrirkomulag þannig að menn mæta bara til leiks og greiða á staðnum.
Gætið þess vel að fylla út skorkortið með greinilegum stöfum, enga læknaskrift :-)
Forgjöf í fyrstu umferð raðar leikmönnum í flokk. Leikmaður verður síðan í þeim flokki í allt sumar.
Mótið er hugsað sem mót sem öll fjölskyldan getur leikið saman og allir eru jafnvel í stthvorum flokknum. Sendið tölvupóst með upplýsingar um fjölskyldustærð á golf18@golf18.is og fáið afslátt fyrir fjölskylduna.
|
Vafraðu um
|