Golf 18

ABC mótaröðin - ABC bikarinn

Forsíða

 Dregið hefur verið í 2. umferð í ABC bikarnum. Sjá undir Önnur umferð í ABC bikarnum.
 

Þriðja umferðin á ABC mótaröðinni er nú hafin á Kirkjubólsvelli í Sandgerði og er leiktími allur júlí. Athugið að meistaramót GSG er 7. til 10. júlí. Ekki er hægt að leika á ABC mótaröðinni þegar önnur mót eru á vellinum.

Engar skráningar eru nú í ABC mótaröðina. Bara greiða þegar þú spilar.

Minnst tveir spila saman. Þeir þurfa ekki að vera í sama flokki.

Sjá nánar hér hægramegin undir ABC mótaröðin.


ABC mótaröðin sumarið 2010
......
...... verður á sínum stað sumarið 2010. Fyrsta árið gekk vel og skilaði átakið "Golf til góðverka" nægum peningum til að greiða fulla framfærslu fyrir 6 börn í ár. (Sjá "Okkar ABC börn" hægramegin á síðunni).

Nokkrar breytingar verða á ABC mótaröðinni sumarið 2010. Leikið verður áfram í fjórum flokkum. Frestað er til næsta árs að hafa kvennaflokka og unglingaflokka. 

Leiknar verða fjórar umferðir á fjórum völlum, þar sem þrjár bestu umferðirnar telja. Niðurskurður verður síðan fyrir síðustu umferðina þar sem ca. efstu 20% í hverjum flokki komast í lokaumferðina. 

ABC bikarinn 2010
Nýtt í ABC bikarnum sumarið 2010 (og framvegis) er að það verður keppt bæði í karla- og kvennaflokki. Semsagt einn opinn flokkur karla og einn opinn flokkur kvenna.

Frestað er að hafa kvennaflokk í ABC bikarnum fram til næsta árs.

Vafraðu um