|
Golf 18 ABC mótaröðin - ABC bikarinn |
|
ForsíðaÚrslit eru komin inn eftir 4 umferðir á ABC mótaröðinni hér til hægri á síðunni undir 3. og 4. umferð. Þar má einnig sjá hverjir hafa keppnisrétt í úrslitamótið. Dregið hefur verið í undanúrslit í ABC bikarnum: Þeir sem leika saman eru: Steinn B. Gunnarsson NK 2,9 - Axel Þórir Alfreðsson GK 8,1
Hermann Geir Þórsson GVG 7,9 - Atli Viðar Gunnarsson GR 8,0 - Axel Rudólfsson GR 8,2 Úrslit og staða er komin inn eftir þrjár umferðir á ABC mótaröðinni. Sjá til hliðar. Fjórða umferðin á ABC mótaröðinni er nú hafin á Reykholtsdalsvelli við Reykholt og er leiktími allur ágúst. Ekki er hægt að leika á ABC mótaröðinni þegar önnur mót eru á vellinum. Engar skráningar eru nú í ABC mótaröðina. Bara greiða þegar þú spilar. Minnst tveir spila saman. Þeir þurfa ekki að vera í sama flokki. Sjá nánar hér hægramegin undir ABC mótaröðin. ABC mótaröðin sumarið 2010...... ...... verður á sínum stað sumarið 2010. Fyrsta árið gekk vel og skilaði átakið "Golf til góðverka" nægum peningum til að greiða fulla framfærslu fyrir 6 börn í ár. (Sjá "Okkar ABC börn" hægramegin á síðunni). Nokkrar breytingar verða á ABC mótaröðinni sumarið 2010. Leikið verður áfram í fjórum flokkum. Frestað er til næsta árs að hafa kvennaflokka og unglingaflokka. Leiknar verða fjórar umferðir á fjórum völlum, þar sem þrjár bestu umferðirnar telja. Niðurskurður verður síðan fyrir síðustu umferðina þar sem ca. efstu 20% í hverjum flokki komast í lokaumferðina. ABC bikarinn 2010 Nýtt í ABC bikarnum sumarið 2010 (og framvegis) er að það verður keppt bæði í karla- og kvennaflokki. Semsagt einn opinn flokkur karla og einn opinn flokkur kvenna. Frestað er að hafa kvennaflokk í ABC bikarnum fram til næsta árs, en bikarinn er tilbúinn og til sýnis í Hole in One. |
Vafraðu um |